KitchenAid 5KSM150PS Mixer User Manual


 
9
Íslenska
Notkun hraðastillingar – 10 þrepa vélar
Allar hraðastillingar byrja sjálfkrafa með Soft Start™ sem þýðir að vélin byrjar á hægum
hraða þegar hún er sett í gang til að koma í veg fyrir skvettur í byrjun. Hún eykur svo
hraðann fljótlega upp í það þrep sem stillt er á.
Hraðastillingarþrep
Blöndun
Hraði BLÖNDUN Hæg hreyfing, blandar og mylur, byrjunarstig
allrar vinnslu. Notað til að bæta í hveiti og
þurrum efnum í deig og blanda vökva í þurr
efni. Notið ekki hraðaþrep 1 til að blanda eða
hnoða gerdeig.
2 HÆG HRÆRUN Hæg hreyfing, blandar og mylur hraðar. Notað
til að blanda og hnoða gerdeig, þykk deig
og sælgæti. Byrjunarstig fyrir kartöflumús og
annað grænmetismauk. Notað til að hræra
smjörlíki saman við hveiti og til að hræra þunn
og blaut deig. Notað þegar dósaopnari er
settur í tengið.
4 HRÆRUN Notað til að hræra meðalþykk deig svo sem
smákökur og til að krema sykur og smjör eða
bæta sykri út í eggjahvítur fyrir marens.
Meðalhraði fyrir kökur. Notað fyrir aukahlutina
hakkavél, rifjárn, pastarúllu og grænmetspressu.
6 HRÖÐ HRÆRUN Hröð hrærun eða þeyting. Notað sem lokastig
á kökudeig, kleinuhringi og önnur deig. Hæsti
hraði fyrir kökudeig. Notað þegar sítruspressan
er sett í tengið.
8 ÞEYTING Notað til að þeyta rjóma, eggjahvítur og glassúr.
10 HRÖÐ ÞEYTING Notað til að þeyta minni skammta af rjóma,
eggjahvítur eða til að ljúka við kartöflumús.
Notað fyrir aukahlutina pastapressu og kornkvörn.
ATHUGIÐ: Heldur ekki háum hraða ef álagið
er mikið svo sem við notkun pastapressu og
kornkvarnar.
ATHUGIÐ:
Notið ekki meiri hraða en þrep 2 við vinnslu gerdeigs þar sem það getur
skemmt vélina.