KitchenAid 5KSM150PS Mixer User Manual


 
10
Íslenska
Ábendingar
Aðhæfið uppskriftir að hrærivélinni
Hægt er að nota leiðbeiningarnar í
þessum bæklingi til að aðhæfa eigin
uppáhaldsuppskriftir að KitchenAid
®
hrærivélinni.
Nota verður eigin hyggjuvit til að
ákveða vinnulagið. Fylgist með deiginu og
hættið að hræra þegar deigið hefur náð
því útliti sem það á að hafa samkvæmt
uppskriftinni, t.d. “mjúkt og kremað”.
Notið hraðastillingarleiðbeiningarnar á bls.
9 til að ákveða hraðann.
Sett í skálina
Þegar flest deig eru hrærð (sérstaklega
kökur og smákökur) er almenna reglan sú
að setja:
1
3 þurrum efnum
1
2 vökva
1
3 þurrum efnum
1
2 vökva
1
3 þurrum efnum
Notið hraðaþrep 1 þar til allt hefur blandast
saman og aukið svo hraðinn upp í það sem
óskað er.
Hellið alltaf í skálina eins nálægt hlið hennar
og hægt er en ekki beint út í hana. Hægt er
að nota hveitibraut til að auðvelda þetta.
ATHUGIÐ: Ef efni á botni skálarinnar
blandast ekki í deigið er hrærarinn ekki
nógu langt niðri í skálinni. Sjá bls. 7 “Bilið á
milli hrærara og skálar”.
Deigblöndur
Þegar notaðar eru tilbúnar deigblöndur
er notað þrep 4 fyrir meðalhraða og þrep
6 fyrir hraða hrærun. Til að árangur verði
sem bestur á að hræra í þann tíma sem
gefinn er upp á umbúðunum.
Hnetum, rúsínum og sykruðum ávöxtum
bætt út í
Hörðum efnum á að bæta út í á síðustu
sekúndum vinnslu á hraðaþrepi 1. Deigið
á að vera nógu þykkt til að hneturnar eða
ávextirnir sökkvi ekki til botns í forminu
þegar bakað er. Klístrugum ávöxtum á að
velta upp úr hveiti til að þeir dreifist betur
um deigið.
Vökvamikið deig
Deig með miklum vökva á að hræra á lægri
hraða til að koma í veg fyrir skvettur.Hraðinn
er aukinn þegar deigið hefur þykknað.
Vinnsla gerdeigs
Notið ALLTAF deigkrókinn til að hræra og
hnoða gerdeig. Notið þrep 2 á gerdeig. Ef
önnur þrep eru notuð er hætta á að vélin
geti bilað.
Notið ALDREI uppskriftir sem þurfa
meira en 0,87 kg (7 bolla) af hveiti eða
0,81 kg (6 bolla) af heilhveiti þegar 4,25
lítra skál er notuð.
Notið ALDREI uppskriftir sem þurfa
meira en 1 kg (8 bolla) af hveiti eða 0,81
kg (6 bolla) af heilhveiti þegar 4,8 llítra skál
er notuð.