KitchenAid 5KSM150PS Mixer User Manual


 
11
Íslenska
Hér er átt við fljótvirku aðferðina við
brauðbakstur þ.e. þurrgerið er sett út í
ásamt öðrum þurrefnum áður en vökva er
bætt út í. Hefðbundna aðferðin er að leysa
gerið upp í volgu vatni.
1. Setjið öll þurru efnin, þ.á.m. gerið, í
skálina fyrir utan 1-2 bolla (125-250 gr.)
af hveiti.
2. Setjið skálina og deigkrókinn í vélina.
Læsið mótorhúsinu, setjið á hraðaþrep
2 og hrærið í um 15 sekúndur eða þar
til efnin hafa blandast vel.
3. Hrærið áfram á hraðaþrepi 2 en bætið
vökva hægt út í og hrærið áfram í 1-2
mínútur að því loknu.
ATHUGIÐ: Ef vökva er bætt of hratt út í
safnast hann við deigkrókinn sem lengir
vinnslutímann.
4. Haldið áfram á hraðaþrepi 2 og bætið
því sem eftir er af hveitinu hægt út í,
hálfum bolla (60 gr.) í senn. Hrærið
þangað til deigið loðir við krókinn og
hreinsar hliðarnar eða í um 2 mínútur.
5. þegar deigið loðir við krókinn hnoðIð
þá á hraðaþrepi 2 í um 2 mínútur eða
þar til deigið er mjúkt og teygjanlegt.
6. Aflæsið, lyftið mótorhúsinu og takið deigið
af króknum. Farið eftir leiðbeiningum
um hefun, form og bakstur.
Þegar hefðbundin aðferð er notuð er gerið
leyst upp í volgu vatni í volgri skálinni.
Vökva og þurrum efnum er svo bætt út í
fyrir utan 1-2 bolla (125-250 g) af hveiti.
Hrært á þrepi 2 í um 1 mínútu eða þar til
efnin hafa blandast vel og svo haldið áfram
samkvæmt þrepum 4-6.
Báðar aðferðirnar duga jafn vel við
brauðbakstur en fljótvirka aðferðin getur
verið nokkuð sneggri og auðveldari fyrir
byrjendur. Hitastigið skiptir minna máli
þar sem gerið er sett út í ásamt öðrum
þurrefnum en ekki leyst upp í volgum vökva.
Vinnsla gerdeigs