KitchenAid 5KFPM770 Food Processor User Manual


 
Íslenska
4
MIKILVÆG ÖRYGGISATRIÐI
Við notkun raftækja skal ávallt hafa ákveðin öryggisatriði í huga, þar á meðal
eftirfarandi:
1. Lesið leiðbeiningarnar vandlega.
2. Til varnar raflosti skal ekki setja matvinnsluvélina í vatn eða annan vökva.
3. Látið ekki börn vera eftirlitslaus við tækið.
4. Takið tækið úr sambandi þegar það er ekki í notkun, áður en það er sett saman
eða tekið í sundur og áður en það er hreinsað.
5. Forðist að snerta hluta tækisins sem eru á hreyfingu.
6. Notið ekki tæki með skemmdri snúru eða kló, tæki sem hefur bilað, dottið í
gólfið eða skemmst á einhvern hátt. Komið tækinu til viðurkennds þjónustuaðila
til skoðunar, viðgerðar eða stillingar.
7. Notkun fylgihluta sem framleiðandi selur ekki eða mælir ekki með geta valdið
eldsvoða, raflosti eða slysum.
8. Notið ekki utanhúss.
9. Haldið höndum og áhöldum frá blöðum og diskum sem eru á hreyfingu meðan
matvæli eru unnin til að draga úr hættu á alvarlegum slysum eða skemmdum
á matvinnsluvélinni. Sleikju má nota en aðeins þegar matvinnsluvélin er ekki í
gangi.
10. Hnífar á diskunum eru beittir. Meðhöndlið þá af varúð.
11. Til að draga úr slysahættu skal aldrei setja blöð eða diska á tækið án þess að
fullvissa sig fyrst um að skálin sé vel fest.
12. Gangið úr skugga um að hlífin yfir skálinni sé örugglega í læstri stöðu áður en
tækið er sett í gang.
13. Setjið aldrei matvæli í tækið með höndunum. Notið alltaf troðarann.
14. Reynið ekki að þvinga í sundur lásinn á hlífinni.
15. Þessi vara er eingöngu ætluð til heimilisnota.
GEYMIÐ ÞESSAR
LEIÐBEININGAR
Þessi vara er merkt í samræmi við
ESB-reglugerð 2002/96/EF um ónýtan
rafmagns- og rafeindabúnað (WEEE).
Sé þess gætt að vörunni sé fargað á réttan
hátt er stuðlað að því að koma í veg fyrir
möguleg neikvæð áhrif á umhverfi og
lýðheilsu sem komið geta fram, sé vörunni
ekki fargað eins og til er ætlast.
Táknið
á vörunni eða skjölum sem
henni fylgja þýðir að ekki má farga henni
með venjulegu heimilissorpi. Þess í stað
skal afhenda hana á förgunarstöð Sorpu
eða sambærilegri afhendingarstöð fyrir
ónýtan rafmagns- og rafeindabúnað.
Vörunni skal fargað í samræmi við reglur
á hverjum stað um förgun sorps.
Sé óskað eftir nánari upplýsingum um
meðferð, endurvinnslu og endurnýtingu
vöru þessarar er að jafnaði hægt
að leita til yfirvalda á hverjum stað,
sorpförgunarfyrirtækis eða verslunarinnar
þar sem varan var keypt.