KitchenAid 5KFPM770 Food Processor User Manual


 
Íslenska
7
Matvinnsluvélin undirbúin fyrir notkun
Fyrir fyrstu notkun
Áður en matvinnsluvélin er notuð í
fyrsta sinn skal þvo vinnsluskálina, hlífina
á vinnsluskálina, kokkaskálina, litlu
skálina, troðarann, diska og blöð annað
hvort í höndum eða í uppþvottavél (sjá
„Meðferð og hreinsun“ á bls. 15).
Samsetning vinnsluskálar
1. Komið matvinnsluvélinni fyrir á
þurru, sléttu undirlagi og látið
stjórnhnappana vísa að ykkur. Setjið
tækið ekki í samband fyrr en það
hefur verið að fullu sett saman.
2. Hafið handfangið lítillega til vinstri
við miðju og setjið vinnsluskálina
á vélina með gatið í miðjunni yfir
snúningsásnum.
3. Takið um handfangið á
vinnsluskálinni og snúið skálinni til
hægri þar til hún læsist föst.
4. Komið viðeigandi fylgihlutum fyrir í
vinnsluskálinni. Sjá leiðbeiningar um
fylgihluti á bls. 7-11.
5. Setjið hlífina á vinnsluskálina með
ílagsopið aðeins til vinstri við
handfang skálarinnar. Takið um
ílagsopið og snúið hlífinni til hægri
þar til hún læsist föst.
ATHUGIÐ: Festið ekki hlífina á
vinnsluskálina fyrr en vinnsluskálin
hefur verið fest á vélina. Annars getur
vinnsluskálin skemmst.
6. Komið tvískipta troðaranum fyrir í
ílagsopinu.
I
O
P
u
l
s
e
Framhald á næstu síðu