KitchenAid 5KFPM770 Food Processor User Manual


 
Íslenska
11
Matvinnsluvélin undirbúin fyrir notkun
4. Tvískipta keilan býður upp á 2
stærðir. Veljið rétta stærð fyrir þá
ávexti sem á að pressa. Notið ytri
keiluna fyrir greipaldin, appelsínur
og aðra stóra ávexti. Fjarlægið ytri
keiluna og minni innri keila kemur í
ljós, en hún er tilvalin fyrir sítrónur
og súraldin.
5. Opnið lokið og setjið keiluna í sigtið
yfir snúningsásnum. Það gæti þurft
að snúa keilunni þar til hún fellur í
réttar skorður.
6. Skerið ávöxtinn sem á að pressa í
tvennt.
7. Setjið hálfan ávöxtinn yfir keiluna.
8. Setjið lokið á sigtið. Haldið
stilliarminum fast niðri með opnum
lófa til að halda jöfnum þrýstingi.
Þegar sítrónupressan er notuð þarf
stilliarmurinn að vera niðri, þannig
heldur hann ávextinum á keilunni.
ATHUGIÐ: Ekki er mælt með notkun
sítrónupressunnar án stilliarmsins. Sé
það gert þarf að taka stilliarminn úr
sigtinu (sjá 13. lið).
9. Setjið sítrónupressuna af stað með
því að styðja á ”I“ eða „Pulse“
hnappinn.
10. Þegar safinn hefur verið pressaður
úr ávextinum skal styðja á „O“
hnappinn.
ATHUGIÐ: Látið ekki innihaldið fara
upp fyrir strikið í vinnsluskálinni sem
sýnir hámark vökvamagns, annars getur
safi lekið úr skálinni.
11. Losið sigtið með því að snúa því
til hægri. Fjarlægið pressaðan
ávöxtinn, keiluna og sigtið úr
vinnsluskálinni.
12. Takið vinnsluskálina af vélinni og
hellið safanum í annað ílát.
13. Til að losa stilliarminn úr sigtinu
fyrir hreinsun, skal toga klemmuna
í botni sigtisins í átt frá hlið þess og
taka arminn úr sigtinu.
14. Þegar stilliarmurinn er festur aftur
í sigtið skal athuga vel að hökin á
klemmunni falli inn í götin í botni
sigtisins.